Sunday, August 29, 2010

Húðumhirða.. svoo mikilvægt..!


Að hugsa vel um húðina sína skiptir rosalega miklu máli, að vera með góða húð er fyrsta skrefið að fallegum faðra, því betri húð sem maður er með því minni foundation, hyljara og púður þarf maður að nota.
Ég er örugglega með þráhyggju fyrir því að vera með góða húð, ég hef prufað mjög margar andlitsvörur, og hef í fyrsta skiptið notað ákveðna hluti í meira en ár.

En hér eru nokkur skref sem ég tel að allir ættu að nota, það er mjög mikilvægt að taka 5 mínútur aukalega á kvöldin og þrífa húðina almennilega..! Það er auðveldara að koma í veg fyrir hrukkur heldur en að laga þær seinna..!!


Hreinsun - Þetta er eitt mikilvægasta skrefið og á að vera gert á hverjum einasta degi, Það þarf að þrífa húðina hvort sem notaður er farði eða ekki. Það safnast allskonar skítur á húðinni yfir daginn, mengunin í loftinu legst á húðina og hún dregur allt í sig. Fílapenslar og bólur myndast ef húðin er ekki þrifin reglulega.
Það þarf að þrífa húðina á kvöldin og á morgnana, Oft hugsaði ég afhverju á morgnana líka þegar maður er kanski búin að þrífa hana vel kvöldið áður. Húðin er alltaf að mynda fitu og svita og það er ekkert mál að taka tóner eða blautan þvottapoka og renna yfir andlitið.

Gott ráð sem ég geri yfirleitt er að þvo hana tvisvar, sérstaklega á kvöldin og ef ég er búin að vera með mikið af make up-i yfir daginn, fyrst þegar maður þrífur hana þá nær maður skítnum af en svo í seinna skiptið ertu að þrífa sjálfa húðina..!
Það fást mjög mörg hreinsiefni, hreinsimjólk, Tóner(andlitsvatn), Hreinsigel, krem og klútar.

En það sem virkar best fyrir mig er:
Þegar ég er geðveikt þreytt og nenni ekki að standa í einhverju veseni þá nota ég hreinsiklút og þríf andlitið, Það má alls ekki gleyma að þrífa hálsinn vegna þess að maður púðrar oft hálsinn en gleymir svo að þrífa hann.. Svo þegar ég er búin að nota hreinsiklútana þá tek ég þvottapoka, Bleyti hann úr volgu vatni og þríf svo húðina sjálfa..! (Ég hef keypt nokkrum sinnum, þvotta poka í ikea, 10 stykki á einhvern 800 kr og nota einn á hverjum degi, þetta er rosa sniðugt, þeir duga frekar lengi)
En svo þegar ég er í hreinsistuði þá þríf ég húðina yfirleitt í sturtu, Það sem mér finnst vera laaaang besta andlitsápa sem ég veit um er frá Clinique, þessi sápa fæst bæði í fljótandi formi og sem sápu stykki, Ég hef notað sápustykkið í meira en 3 ár, Fyrst átti ég litla sápu en svo keypti ég stærri gerðina, hún dugaði mér í meira en eitt og hálft ár. Þetta er samt dýrt sápustykki en ef maður, setur sápuna alltaf í boxið sem hún kemur í og lætur hana ekki vera bara í sturtunni þá dugar hún lengur, mér finnst líka sápustykkið duga lengur heldur en fljótandi sápan. Þessi sápa er hluti af 1,2,3 step línunni hjá Clinique.
Svo þegar ég er búin í sturtu þá nota ég Toner/andlitsvatn, Clinique tónerinn er allt of sterkur finnst mér en ég nota Tónerinn frá Sonya línunni sem er frá Aloe Vera, Þetta er einn langbesti tóner sem ég hef notað og hann er búinn núna þannig ég er að leita af góðum tóner. Tóner lokar húðinni og jafnar sýrustig hennar.
Ég nota tóner alltaf á morgnanna, ég vakna þríf húðina með þvottapoka og skelli smá tóner á hana og þetta frískar svo upp húðina.
Svo er bara að næra húðina eftir hreinsun..!

Svo er eitt skref sem fellur aðeins inní hreinsunina og það er að djúphreinsa: Þetta geri ég sirka tvisvar í viku í mesta lagi. Mér finnst æðislegt að setja á mig maska áður en ég fer í sturtu og hef farið í gegnum mismunandi maska og flestir þeirra góðir, það er hægt að kaupa maska sem harnar á húðinni, er bara krem og svo er líka peal off mask sem ég fýla mjög mikið.
Ég er samt nýbúin að uppgvöta einn scrub frá Clinique sem heitir exfoliating scrub gommage tonique. Maður notar þennan bara í sturtunni og hann er ekkert smá hreinsandi, Ég sleppi þá að nota sápuna þegar ég nota scrub-inn. Ég nota hann samt bara á staði sem ég þarf að skrúbba vel einsog nefið, hökuna og ennið. Ég er ekkert að skrúbba kinnarnar ef ég er ekkert með neinar bólur þar. Þaðer smá myntu lykt af honum og hann er ekkert smá góður. Hér er mynd af honum




Hægt er að fá sama skrúbb en fyrir viðkvæma húð og ég mæli mjög mikið með báðum skrúbbunum:D


Næring: Það er nauðsynlegt að næra húðina, ein ástæðan afhverju hrukkur verða til er, þegar húðin er of þurr þá koma svona sprungur í hana og til lengri tíma verða þetta að hrukkum..!!! En ég við erum dugleg að næra og gefa húðinni raka þá komum við frekar í veg fyrir að húðin þornar og springur. Ég set alltaf á mig Serum og svo dagkrem. Serum-ið sem ég nota er frá Sonya línunni hjá aloe vera og er með hvítu tei og er alveg rosalega gott svo nota ég dagkremið sem fylgir með yfir.
Hér er mynd af þessi yndislega Serum-i



Ég er búin að nota þetta í meira en ár og fýla þessar vörur mjög vel. En hinsvegar vil ég fara breyta til þannig ef þið vitið af einhverju rosalega góðu þá endilega látið mig vita:D

Annað krem sem ég fýla mjög mikið er dagkremið frá Clinique, ég er að pæla í að kaupa það aftur, ég notaði það alltaf einu sinni áður en ég fékk hin kremin. Þetta krem er líka hluti af 1,2,3 Step línunni og hægt er að fá það sem krem eða gel. Ég mæli mjög mikið með þessu kremi. Það hefur unnið til margra verðlauna og er þetta líka ekkert smá gott krem!



Það má alls ekki gleyma að setja krem á hálsinn og í kringum augun, Það eru ekki öll krem sem eru hentug til að setja á augnsvæðið, Þetta svæði er eitt viðkvæmasta svæðið og því er mikilvægt að veita því mikinn raka. Hægt er að kaupa sérstök augnkrem en það á ekki að þurfa þegar maður er mjög ungur en mér finnst samt gott að nota þau stundum áður en ég fer að sofa til þess að gefa augnsvæðinu aukinn raka vegna þess að hrukkur myndast fyrst í kringum augun.


SPF- Annað mikilvægt skref sem margir gleyma er sólarvörn...! Þótt við búum á Íslandi og það er vetur þá er mjög gott að velja sér krem eða farða með SPF 15. Að verja húðina með SPF 15 er eithvað sem hver og einn á að gera...!
Andlitsprimerinn sem ég nota áður en ég mála mig er með SPF 15 í. Það verður bráðum færsla um primer-a :D

Seinasta skrefið hefur maður heyrt milljón sinnum. Þú ert það sem þú borðar! Ef maður borðar mikið af fitugum mat og nammi þá verður húðin fitugari og fleiri fílapenslar myndast..!
Og þá þarf að taka á því.
En með því að drekka mikið vatn og borða hollan mat þá endurspeglar húðin það..! Ég tek eftir því sjálf að ef ég er búin að vera éta mikið nammi þá vakna ég með eina góða bólu á nefinu haha..!

En svo er líka ekki alltaf hægt að stjórna húðinni vegna þess að bólur eru oft vegna hormóna, hver þekkir ekki túrbólur..? En með því að vera með góða rútínu á að sjá um húðina þá ertu ekki að bæta ofan á hormónabólurnar, þú ert þá að þrífa húðina betur og minnkar líkurnar á að fá fílapensla og bólur.

Það eru mjög mikið af góðum húðvörum til og ég er alls ekki professional manneskja..
Mér finnst samt sem áður Body shop andlitsvörurnar góðar, ég notaði nivea alltaf einu sinni og það eru ódýrar og góðar vörur. Þegar kemur að því að kaupa nýjar húðvörur og kannski aðeins í dýrari kanntinum þá er ekkert mál að biðja um sýnishorn og fá litla krukku með vörunni til að prufa.


Ég vona að þetta hafi hjálpað einhverjum og endilega kommentið og ef þið vitið um góðar vörur, látið mig vita:D

Tuesday, August 24, 2010

Topshop make up!

Ég er búin að bíða lengi eftir því að geta komist yfir Topshop snyrtivörurnar og væntingar mínar voru miklar, sem betur fer þá var ég mjög ánægð með þær vörur sem ég keypti:D





Ég keypti sem sagt naglalakk, kinnalit, augnskugga og bursta og fékk frítt með litla make-up tösku.
Ef ég tek bara allar vörurnar saman þá verð ég að hrósa topshop fyrir flottr umbúðir, þetta er allt svart og hvítt og með doppum, það eru meira segja doppur inní snyrtitöskunni, Þessar vörur eru í góðum gæðum og á góðu verði, vörurnar eru í sirka meðalverði, ekki of dýrar og ekki of ódýra, tek sem dæmi þá er augnskugginn á 6 pund en þú getur sparað 3 pund í viðbót og keypt MAC augnskuga, og naglalakkið er á 5 pund en t.d. eru Barry M naglalökkin á 2,95 pund.

Enn ef ég byrja bara á fyrstu vörunni sem ég keypti þá var það naglalakkið og það heitir Art School og er ferskjubleikur litur og hann er svo sumarlegur en samt mattaður og ég á líklegast eftir að nota hann mikið þótt hann sé frekar sumarlegur vegna þess að hann fer rosalega vel með haustlitum líka:



Naglalakkið er á 5 pund
Ég setti það á mig, tvær umferðir og ég set yfirleitt glært naglakk yfir til að liturinn þornar fyrr og haldist lengur en ég þurfti þess ekki og ég þurfti að laga það eftir sirka 5 daga, sem er mjög gott vegna ég var bara með lakkið og ekkert yfirlakk.



Svo er vara sem kom mér svo á óvart, og það er augnskuggaburstinn þeirra! Ég er algjör burstafíkill og þessi bursti er ekkert smá góður, ég ætlaði ekkert að kaupa hann, ég var með tvær vörur og ef maður keypti þrjár þá fékk maður make-up tösku frítt með þannig ég tók bara burstan vegna þess að hann kostaði aðeins 4 pund..! sirka 800 krónur fyrir þessi gæði er alveg klikkun! Ég er búin að nota burstan á hverjum degi með augnskugganum sem ég keypti og ég er ekki að grínast, ég er tæpar 2 mín að skella þessu á mig. Hann blandar litunum svo vel saman á augnlokinu og hárin eru svo mjúk, ég er alveg að missa mig yfir þessum bursta haha



Síðan er það augnskuggarnir, þetta eru tveir litir saman. Ég er alveg dugleg að vera með liti á augunum en ákvað að play it safe og kaupa mér náttúulega liti og ég er búin að vera með þessa augnkugga á hverjum degi frá því ég fékk þá (5 daga)





Að skella þeim á tekur í alvöru 1 mín á sitt hvort augað, ljósi liturinn fer í innra hornið á auganum og notar hann sem highlighter á augnbeinið og svo er dekkri liturinn notaður til að skyggja og svo blandað litunum saman þannig þetta líti vel út




Þetta er svo flott, náttúrlegt og hægt að nota á hverjum degi..



Ég er alveg að fíla þessa augnskugga, ég nota samt primer undir þá til að fá litina sem best fram og þannig það er auðveldara að blanda þeim saman, Ég nota samt yfirleitt alltaf primer á augun, og ég stefni á blogg um það seinna meir:D

Síðan er það varan sem ég kom til að kaupa haha, en það er kinnaliturinn, þetta er krem/powder kinnalitur. maður setur smá á kynnarnar og blandar svo litnum inn með puttunum. Ég valdi mér litinn Neon Rose sem er frekar skær en þegar maður blandar honum inní húðina þá verður hann geðveikur.



Hann myndast frekar skringilega en ég er búin að nota hann frekar mikið, og þetta verður líklegast sá kinnalitur sem ég gríp í þegar ég e að drífa mig



Hér er hægt að versla vörnar



Þetta er semsagt lookið..! Ég er með augnskuggana og kinnalitinn, þetta er fullkomið náttúrulegt make-up, Ég er með smá hyljara og púður, lit í augabrúnunum og varasalva:D Þetta er eitthvað sem allir geta verið með og ég er svo að fýla þetta núna:D

Kveð þangað til næst..!

Wednesday, August 18, 2010

Going Gaga for the first time

Jæja nú þegar síðan er orðin til, hver er þá betri að vígja hana heldur en Lady Gaga..!

M.A.C hefur gefið út varalitin Viva Glam Gaga, og það er svoldið langt síðan hann hefur komið út og hef ég ætlað mér að kaupa hann í svo langan tíma, og loksins hér úti get ég það!



Ó mæ hann er svo flottur og það sem er best við hann er að allur peningurinn fer í The M.A.C Aids fund...! M.A.C gefur alla framleiðslu og pökkun og allt það, Vara liturinn er líka bara geðveikur, með prentaðri eiginhandaráritun og allt.

Viva Glam var stofnað árið 1994 til að styðja þá sem lifa með Hiv/Aids um allan heim. Það hefur komið út sex mismunandi gerðir af Viva Glam og eru þær allar með rómverskum tölum. Það er ennþá hægt að kaupa þá liti og eru þeir geðveikir og ætla ég mér að kaupa þá seinna.



Núna um vorið kom M.A.C út með tvo liti Viva Glam Gaga (Lady Gaga hannaði þann lit) og Viva Glam Cyndi (Cyndi Lauper hannaði hann). Og Þessir litir verða aðeins framleiddir í eitt ár þannig um að gera að kíkja á þessa liti.



Viva Glam Cyndi er mjög flottur litur og ég skoðaði hann mjög mikið en einhvern vegin finnst mér þessi ljós bleiki mattaður litur geðveikur.
Ég mæli með að þið kíkið á báða litina og styðjið gott málefni. Þessir litir eiga vera til í M.A.C á Íslandi en annars er hægt að panta þá á M.A.C síðunni.



Hér er yours truly með þennan geðsjúkan varalit

Hér eru meiri upplýsingar um Viva Glam

Þá er þessu fyrsta review-i lokið, Það er margt sem verður á þessari síðu, og ég er með svo mikið skemmtilegt planað, Næsta færsla verður líklegast um Topshop snyrtivörurnar sem eru voða vinsælar og er ég búin að kaupa eitt naglalakk og ætla líklegast að ná í tvær vörur í viðbót þannig þetta geti nú verið almennileg færsla. Þótt þið sem eruð heima á Íslandi getið ekki keypt sumar vörurnar sem ég skrifa um þá á þetta líka að hjálpa ykkur og sýna ykkur hugmyndir og ef ykkur líkar rosa vel við eitthvað þá er alltaf hægt að láta senda sér heim:D

Allavegana þá kveð ég að sinni
Margrét
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...